top of page

Meðganga, nýburar og ungbörn

Ég veit ekkert dásamlegra en að fá að mynda konur á meðgöngu og svo litlu nýfæddu krílin ykkar fyrstu 14 dagana í lífi þeirra. Ég hef ekki lengur tölu á því hversu mörg ég hef myndað en ég er svo þakklát fyrir hvert og eitt þeirra. Svo er ekkert síðra að fá nokkra mánaða krútt sem eru t.d. nýfarin að sitja. 
Markmiðið mitt er að láta öllum líða vel í myndatökum og aðlaga mig
eftir þörfum hvers og eins. Ef það er eitthvað sem passar ekki við
ykkar fjölskyldu þá sendiði mér línu og við finnum lausn.

​

Helstu upplýsingar : 

  • Best að koma í kringum 30-35 vikur í meðgöngumyndatöku.
    Annars er velkomið að koma hvenær sem er. Hægt að taka maka
    og börn með ef þess er óskað. 

  • Best er að koma fyrstu 14 dagana í nýburatöku.

  • Gott er að bóka nýburatökuna þegar þið eruð komnar ca 5-8
    mánuði á leið.

  • Ungbarnamyndataka getur farið fram um leið og barnið er farið
    að halda haus og að 1.árs afmæli. 

  • Hægt er að hafa myndatökuna hjá mér (set upp stúdíó heima hjá mér eins og er) eða ég get líka komið heim til ykkar (innan höfuðborgarsvæðis). 

  • Myndum er skilað í net- og prentupplausn í lit og svarthvítu. Viðskiptavinur velur myndir sjálfur ef hann vill innan 10 daga. Ljósmyndum er skilað á inná læst heimasvæði viðskiptavinar 2-4 vikum eftir að valið er komið.  ​

  • Auka mynd kostar 4.000 kr.​

  • Ég bið alla að lesa yfir skilmála við bókun sem má finna hér :

​

0V3A5983.jpg
0V3A0099-1.png

Pakki 1 - 5 myndir

Mæli með að koma í kringuma 30-35 vikur​​

50.000 kr. 

0V3A1150-1.png

Pakki 2 - 10 myndir

Mæli með að koma í kringuma 30-35 vikur​

60.000 kr. 

0V3A9300-1.png

Tilboð Meðganga + Nýbura

5 myndir úr meðgöngumyndatöku og 5 myndir í nýburamyndatöku 

95.000 kr. 

Meðganga
 

0V3A9323_edited.jpg

Pakki 1 - 2 myndir

Bara nýburinn. Ekki hægt að bæta við myndum. Einn bakgrunnur. 1-2klst.​

42.000 kr. 

0V3A4821_edited_edited.jpg

Pakki 2 - 5 myndir

Nýburinn og foreldrar/systkini. Hægt að bæta við myndum. 1-3klst. 

62.000 kr. 

0V3A0362.jpg

Pakki 3 - 10 myndir

Nýburinn og foreldrar/systkini. Hægt að bæta við myndum. 1-3klst.

78.000 kr. 

0V3A9855_edited.jpg

Pakki 4 - 15 myndir

Nýburinn og foreldrar/systkini. Hægt að bæta við myndum. 1-3klst.

95.000 kr. 

Nýburamyndatökur
 

Hvernig virka heimatökur og af hverju ætti maður að velja þær ?

Heimatökur eru yndislegar og rólegar. Þær henta einstaklega vel í bæði meðgöngu og nýbura/ungbarna myndatökur. Þá kem ég heim til ykkar og mynda ykkur í ykkar umhverfi. Þetta hentar sérstaklega vel þegar fólk er með eldri systkini sem eiga að vera með á myndum. Allt er miklu rólegra og enginn asi. Börnin eru líklegri til að gleyma sér og myndirnar verða svo fallegar og innilegar. Allt annar vinkill en í stúdíói þá er allt meira uppstillt sem er líka fallegt á sinn hátt. Þegar ég kem í heimatökur þá tek ég oftast með eitt stúdíó ljós og svo það props sem hentar hverju sinni. T.d. vefjur fyrir nýburann, hárbönd og stóra gæru sem hentar t.d. vel fyrir systkinatökur eða til að stilla nýburanum upp. En flestar myndirnar tek ég bara í ykkar umhverfi t.d. í sófa heimilisins eða hjónarúmi.

0V3A2655.jpg

Pakki 1 - 5 myndir

Má taka systkini/foreldra með en þessi myndataka er hugsuð aðalega til að ná myndir af ungbarninu. 60-90 mín.

50.000 kr. 

0V3A8892-1.jpg

Pakki 2 - 10 myndir

Má taka systkini/foreldra með en þessi myndataka er hugsuð aðalega til að ná myndir af ungbarninu. 60-90 mín.

60.000 kr. 

Ungbarnamyndatökur
 

Bóka myndatöku ? 

Viltu bóka myndatöku eða ertu með fyrirspurn ?

Allar bókanir og fyrirspurnir fara í gegnum skilaboð á facebook eða instagram em ég linka hér fyrir neðan. Ef þú ert ekki með svoleiðis geturu sent mér skilaboð á þetta email : saraandrea.photography@gmail.com
​
Hér er beinn hlekkur á instagram og facebook : 
​
​

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page