Fjölskylda
Eitt af því sem ég segi alltaf við fólk er að þú sérð aldrei eftir að fara of oft í myndatöku. Það er svo dýrmætt að eiga fallegar myndir af sér og sínum bæði á stórum stundum og líka bara í hversdagsleikanum. Búa til minningar saman, bóka myndatöku, hitta ljósmyndara á góðum laugardegi og taka nokkrar myndir. Hljómar það ekki vel ?
Helstu upplýsingar :
-
Flestar fjölskyldumyndatökur fara fram úti og ég mæli alltaf meira
með því heldur en stúdíó. En stúdíó hefur sinn sjarma líka og ekkert
mál að bóka svoleiðis myndatöku líka. -
Útimyndatöku eru frjálslegri og börnum finnst þær yfirleitt
skemmtilegri og eru meira til í að sitja fyrir úti. -
Hægt er að koma í myndatöku allan ársins hring bæði í úti og
stúdíó (ég set upp stúdíó heima hjá mér í stofunni eins og er). -
Undanfarið eru heimamyndatökur orðnar mjög vinsælar. Þá kemur
ljósmyndarinn heim til ykkar og myndar í ykkar umhverfi. Það eru alveg dásamlegar og innilegar myndir. -
Myndum er skilað í net- og prentupplausn í lit og svarthvítu. Viðskiptavinur velur myndir sjálfur ef hann vill innan 10 daga. Ljósmyndum er skilað á inná læst heimasvæði viðskiptavinar 2-4 vikum eftir að valið er komið.
-
Auka mynd kostar 4.000 kr.
-
Ég bið alla að lesa yfir skilmála við bókun sem má finna hér :


Pakki 1 - 3 myndir
stutt myndataka, 20mín
35.000 kr.

Pakki 2 - 5 myndir
42.000 kr.

Pakki 3 - 10 myndir
57.000 kr.

Pakki 4 - 15 myndir
70.000 kr.
Fjölskylda (foreldrar+börn)

Pakki 1 - 10 myndir
Flottur pakki ef þið viljið fáar myndir og ekki fleiri en 12 manns ca.
70.000 kr.

Pakki 2 - 20 myndir
Vinsælasti pakkinn, flottur fyrir allar stærðir af fjölskyldum.
90.000

Pakki 3 - 30 myndir
Stærsti pakkinn, flestu myndirnar og tilvalin fyrir mjög stórar fjölskyldur,
100.000 kr.
Stórfjölskylda
Hvernig virka heimatökur og af hverju ætti maður að velja þær ?
Heimatökur eru yndislegar og rólegar. Þær henta einstaklega vel í bæði meðgöngu og nýbura/ungbarna myndatökur. Þá kem ég heim til ykkar og mynda ykkur í ykkar umhverfi. Þetta hentar sérstaklega vel þegar fólk er með eldri systkini sem eiga að vera með á myndum. Allt er miklu rólegra og enginn asi. Börnin eru líklegri til að gleyma sér og myndirnar verða svo fallegar og innilegar. Allt annar vinkill en í stúdíói þá er allt meira uppstillt sem er líka fallegt á sinn hátt. Þegar ég kem í heimatökur þá tek ég oftast með eitt stúdíó ljós og svo það props sem hentar hverju sinni. T.d. vefjur fyrir nýburann, hárbönd og stóra gæru sem hentar t.d. vel fyrir systkinatökur eða til að stilla nýburanum upp. En flestar myndirnar tek ég bara í ykkar umhverfi t.d. í sófa heimilisins eða hjónarúmi.





















